Valentínusartilboð Sel-Hótel Mývatns💕✨
14. - 16. Febrúar 2025
Fagnaðu ástinni með rómantískri helgarferð á Sel-Hótel Mývatni! Við bjóðum upp á einstakt Valentínusartilboð þar sem þú og maki þinn getið notið afslöppunar, ævintýra og ljúffengra veitinga í töfrandi umhverfi.
Tilboð 1 – Lúxusupplifun 🥂❄️
- Gisting í tveggjamanna herbergi í tvær nætur með morgunmat.
- Aðgangur í Jarðböðin fyrir tvo (skutl í boði fram og til baka kl. 16:45 á laugardeginum).
- Tveir rómantískir Valentínuskokteilar á bar hótelsins.
- Spennandi snjósleðaferð með Geo Travel kl. 10:30 á laugardeginum.
Verð: 69.900 kr (fyrir tvo)
Tilboð 2 – Sveitasæla og afslöppun 💖
- Gisting í tveggjamanna herbergi í tvær nætur með morgunmat.
- Tveir rómantískir Valentínuskokteilar á bar hótelsins.
Verð: 26.900 kr (fyrir tvo)
Afslættir sem gilda með tilboði 2:
- *25% afsláttur í Jarðböðin (hægt er að fá skutl fram og tilbaka kl. 16:45 á laugardeginum fyrir 1.000kr per mann).
- **25% afsláttur af snjósleðaferðum með Geo Travel alla helgina.
*allir sem bóka þennan pakka fara á lista hjá Jarðböðunum og þurfa bara að segja nafnið á bókuninni til að fá 25% afslátt þessa helgi.
** allir sem bóka þennan pakka fara á lista hjá Geo Travel og þurfa bara að segja nafnið á bókuninni til að fá 25% afslátt þessa helgi.
Upplifið ógleymanlega helgi þar sem rómantík, ævintýri og afslöppun sameinast í einstöku umhverfi Mývatns. ❄️💕

