Um okkur

Velkomin/nn í Mývatnssveit og til okkar í Sel-Hótel Mývatn.  Forsaga þessa hótels er sú að 1973 stofnuðu Sigrún Jóhannsdóttir og Kristján Yngvason verslun og veitingastað að Skútustöðum og nefndu Sel.  Árið 2000 var síðan tekið í notkun nýtt hótel með 35 herbergjum sem eru öll með sér baðherbergi, síma, útvarpi og sjónvarpi.  Einnig er möguleiki á tölvutengingu inn á herbergin. 

Hótelið er vel búið til að taka á móti hvort sem er einstaklingum, fyrirtækja- og skemmtiferðum bæði varðandi aðbúnað á hótelinu og einnig aðra afþreyingu á Mývatnssvæðinu. Ennfremur er hótelið einstaklega vel staðsett til að sinna ráðstefnum og fundum fyrir stærri sem smærri hópa. 

Sel-Hótel Mývatn er fjölskyldufyrirtæki þar sem leitast er við að skapa heimilislegt viðmót og umhverfi.  Núverandi rekstraraðilar eru Yngvi Ragnar Kristjánsson og Ásdís Erla Jóhannesdóttir

Afþreying, slökun, vellíðan

100_2379

Verð 2010

Bókun


Veldu dagssetningu
Veldu dagssetningu

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning