Velkomin/nn í Mývatnssveit og til okkar í Sel-Hótel Mývatn. Forsaga þessa hótels er sú að 1973 stofnuðu Sigrún Jóhannsdóttir og Kristján Yngvason verslun og veitingastað að Skútustöðum og nefndu Sel. Árið 2000 var síðan tekið í notkun nýtt hótel með 35 herbergjum sem eru öll með sér baðherbergi, síma, útvarpi og sjónvarpi. Einnig er möguleiki á tölvutengingu inn á herbergin.
Hótelið er vel búið til að taka á móti hvort sem er einstaklingum, fyrirtækja- og skemmtiferðum bæði varðandi aðbúnað á hótelinu og einnig aðra afþreyingu á Mývatnssvæðinu. Ennfremur er hótelið einstaklega vel staðsett til að sinna ráðstefnum og fundum fyrir stærri sem smærri hópa.
Sel-Hótel Mývatn er fjölskyldufyrirtæki þar sem leitast er við að skapa heimilislegt viðmót og umhverfi. Núverandi rekstraraðilar eru Yngvi Ragnar Kristjánsson og Ásdís Erla Jóhannesdóttir





