Fréttir

Músík í Mývatnssveit í Reykjahlíðarkirkju

Músík í Mývatnssveit á páskum

Í tíunda sinn er tónlistarhátíðin "Músík í Mývatnssveit" haldin á páskum. Í ár er boðið upp á einkar glæsilega dagskrá í flutningi framúrskarandi listamanna.

Á skírdag verða kammertónleikar í Skjólbrekku kl. 20. Þar verður flutt ein af perlum kammertónlistarinnar, oktett eftir Schubert fyrir strengi og blásara ásamt sönglagaútsetningum eftir Hrafnkel Orra Egilsson. Á föstudaginn langa eru kirkjutónleikar í Reykjahlíðarkirkju kl. 21 þar sem flutt verður tónlist sem hæfir stund og stað m.a. eftir Bach, Vivaldi og Mozart. Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Laufey Sigurðardóttir fiðla, Sigurlaug Eðvaldsdóttir fiðla, Margrét Hjaltested víóla, Bryndís Björgvinsdóttir selló, Hávarður Tryggvason kontrabassi, Rúnar Óskarsson klarinett, Brjánn Ingason fagott, Þorkell Jóelsson horn.


Afþreying, slökun, vellíðan

Bókun


Veldu dagssetningu
Veldu dagssetningu

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning