Fuglalíf í Mývatnssveit
þriðjudagur 29.apr.08 13:55 - Lestrar 2302
Fuglalífið í Mývatnssveit gerist æ fjölbreyttara með hverjum deginum sem líður. Þrátt fyrir leiðinlegt veður í dag, sá Illugi Már leiðsögumaður og fuglaskoðarar með honum 21 fuglategund.
Þær voru:
Húsönd, Straumönd, Grágæs, Flórgoði, Toppönd, Skúfönd, Rauðhöfði, Ljóshöfði, Lóa, Sandlóa, Stelkur, Álft, Hrafn, Smyrill, Grænhöfði, Gargönd, Urtönd, Heiðagæs, Hettumávur, Skógarþröstur og Auðnutittlingur.
Það má með sanni segja að Mývatnssveit sé paradís fuglaskoðunarmannsins!






